Færsluflokkur: Bloggar
16.2.2009 | 06:46
Madeira - hinn fljótandi blómapottur Atlantshafsins

Tóti sinnir leiðangursstjórahlutverkinu af mikilli elju, hangir á hornunum nótt sem dag og kom okkur örugglega inn á flugbrautina hér sem hlaðin er á stöplum.
Annars er mikill hugur í okkur.....bíðum spennt eftir Afríku....Addis Ababa á morgun...hlökkum mikið til.
Madeira (Perla Atlantshafsins)
Madeira er staðsett 540 mílur suðvestur af Lissabon í Portugal. Eyjan er 741 km2 að stærð og tilheyri Afríku landfræðilega séð. Eyjan var uppgötvuð af Portúgölskum sjómönnum á 15. öld og er því Portúgölsk nýlenda og rekin sem sjálfstjórnarhérað innan Portúgals.
Funcal er höfuðborg Madeira og eru íbúar u.þ.b. 100.000.
Madeira er þekkt fyrir vínframleiðslu og oft kölluð fljótandi blómaeyjan . Eyjan dregur nafn sitt af lárviðarskógi en Madeira þýðir viður á Portúgölsku.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.2.2009 | 00:02
“This is the only real city-city” as Truman Capote put it but if you are borned in New York it´s your own fault.
Jæja þá erum við öll búin að skúra og skeina í síðasta skiptið næstu 25 dagana. Ekkert annað í stöðunni en að skilja allar áhyggjur eftir á klakanum og leyfa tilhlökkuninni að streyma inn. Tókum við góðu búi af áhöfninni á FI-1444. Keflavík var í Speedy gír þegar við mættum, tíminn notaður til að hreinsa og snurfusa þennan klukkutíma sem vélin stoppaði í sunny Kef.Erum varla búin að átta okkur á því að ferðin er hafin. Áhöfnin á FI-1444 sagði okkur að þetta líði ótrúlega fljótt og ferðin yrði búin áður en við vissum af. Þá er bara að byrja að njóta ! Grátbólgnir farþegarnir úr heimsferðinni gengu um borð eftir kveðjustund í flugstöðinni, þeir voru í skýjunum með sýna frábæru áhöfn. TF-FIA heimilið okkar að heiman rann mjúklega í loftið, flugið gekk eins og í sögu, byrjaði rólega flestir farþegarnir fengu sér siestu, að henni lokinni var borin fram fjögurra rétta máltíð með tilheyrandi vínum. Þegar við nálguðumst Stóra eplið var kveðjustund farþeganna og var ljóst að margir höfðu eignast nýja vini í ferðinni.Lentum á JFK, farþegarnir glaðir og ánægðir en áhafnarmeðlimir allir sammála um að sjaldan, ef ekki aldrei hefði flugleiðin KEF-JFK liðið jafn hratt. Eftir örlitla tiltekt og tollskoðun var farangrinum komið í bílinn þar sem allar dömurnar í áhöfninni máttu bíða í yfir klukkustund þar sem herramennirnir í stjórnklefanum villtust á alþjóðaflugvellinum þegar þeir þurftu að færa vélina á milli hliða!! Að sjálfsögðu skiluðu þessar elskur sér að lokum, glaðir og ánægðir með vel unnið verk. Allir komnir inn á Hilton, sælir og fullir tilhlökkunar. Afríka handan við hornið Örstutt stopp á Madeira í millitíðinni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.2.2009 | 16:47
Áhöfnin á flugi FI 1446 - Afríka
Í áhöfn að þessu sinni eru:
Efri röð frá vinstri:
Gunnar Sigurðsson flugvirki, Linda Gunnarsdóttir flugmaður, Hafsteinn Pálsson flugstjóri, Þórarinn Hjálmarsson leiðangursstjóri, Haraldur Hreggviðsson load master og kokkur, Sigurður Jónsson kokkur
Neðri röð frá vinstri:
Kara Pálsdóttir flugfreyja, Björg Jónasdóttir yfirflugfreyja, Þorbjörg Margeirsdóttir flugfreyja, Auður Guðmundsdóttir flugfreyja
Elsku fjölskylda, vinir og vinnufélagar verið dugleg að senda okkur kveðju í gegnum vefinn okkar.
Hugsum til ykkar
Bloggar | Breytt 12.2.2009 kl. 23:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.2.2009 | 09:04
Nú styttist óðum í brottför!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Um bloggið
FI-1446
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar