10.3.2009 | 18:43
Fréttatilkynning
Hópurinn "Gíraffana heim" boðar til samsætis dýrelskra mannvina. Gengið verður fylktu liði manna og ferfætlinga frá Lækjartorgi að Húsdýragarðinum í Laugardal aðfaranótt nk. sunnudags. Gangan hefst kl. 03:00 stundvíslega og nær hámarki er dýrunum verður brynnt árla morguns. Er það óvenju tilkomumikil sjón. Árni Matthiesen dýralæknir mun kyngreina dýrin og flugfreyjukórinn syngja afrísk ættjarðarlög til heiðurs okkar nýju ástkæru sonum og dætrum. Heitt verður á könnunni og kalt á Körmit. Mama Masai miðlar af áralangri reynslu sinni af uppeldi og aðbúnaði gírafa í tjaldi sínu. Bóndinn á Kjaranstöðum og Totti stíga léttan dans til styrktar málefninu. Hafmeyjan tekur á móti smávöxnum gíröfum til ættleiðingar. Mætum öll prúðbúin að afrískum sið með dýrin okkar stór og smá og gleðjumst yfir fegurð sköpunarverksins.
Nánari upplýsingar fást á heimasíðu félagsins, www.welovegiraffs.is
Stjórnin
Um bloggið
FI-1446
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.